Flutningur gagna í annað tæki
Ef þú vilt afrita eða samstilla gögn úr tækinu þínu verður heiti tækisins sem flytja á gögn í, ásamt stillingum þess, að vera á
listanum yfir heimiluð tæki. Ef þú færð send gögn úr öðru tæki (til dæmis samhæfum fjarskiptabúnaði) er samsvarandi tengilið
sjálfkrafa bætt á listann í samræmi við mótteknu gögnin.
Samst. miðlara
og
Samst. tölvu
eru upphaflegu atriðin á listanum.
Ef þú vilt bæta nýjum tengilið við listann (til dæmis fjarskiptabúnaði) skaltu velja
Valmynd
>
Stillingar
>
Tengi-
möguleikar
>
Gagnaflutn.
>
Valkost.
>
Bæta við tengilið
>
Samstilling síma
eða
Afritun síma
og færa inn stillingarnar
í samræmi við flutningsgerðina.
Til að breyta stillingum fyrir afritun og samstillingu velurðu tæki af listanum og svo
Valkost.
>
Breyta
.
Til að eyða tengingu við gagnaflutningstæki velurðu það í flutningslistanum og svo
Valkost.
>
Eyða
.