Neyðarhringingar
Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar
aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust
tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.
2. Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
4. Styddu á hringitakkann.
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
44
Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Nánari upplýsingar má
fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina
samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.